Fríða Ísberg
f. 1992
Fríða Ísberg (f. 1992) er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Hún lauk BA-prófi í heimspeki og MA-prófi í ritlist frá Háskóla Íslands. Fyrsta bók hennar, ljóðasafnið Slitförin, kom út árið 2017 og síðan hafa komið út meðal annars smásagnasafnið Kláði (2018), ljóðabókin Leðurjakkaveður (2019) og skáldsagan Merking (2021). Verk Fríðu hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga, þar á meðal Fjöruverðlaunin, og Kláði var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2020. Bækur hennar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál. Fríða er einnig ein af sex meðlimum skáldahópsins Svikaskáld.