Eiríkur Stephensen

b. 1967

Eiríkur Stephensen (1967) er líffræðingur og tónlistarmaður. Hann hefur leikið á saxófón og klarinett með ýmsum hljómsveitum (t.d. Júpiters, Hringjum, Spöðum, Látún og Smurjóni) og samið lög fyrir sumar þessara sveita. Hann lauk doktorsprófi í líffræði frá Gautaborgarháskóla 2003 og M.Mus. prófi í tónsmíðum frá LHÍ 2023. Hann er helmingur saxófóndúettsins Saxa & Sachsa en þeir sáu um samnefnda útvarpsþáttaseríu á Rás 1 árið 2024. Árið 2018 kom út eftir hann skáldsagan Boðun Guðmundar og 2025 gaf hann út sólóplötuna Eirrek.