SAMNINGSAÐILI
Sem viðskiptavinur shop.icelandmusic.is er samningsaðili þinn:
Tónlistarmiðstöð – Iceland Music
Austurstræti 5
101 Reykjavík
Ísland
Lögheiti: Tónlistarmiðstöð
Kennitala: 431023-0240
FYRIRVARI
Tónlistarmiðstöð ber ekki ábyrgð umfram það sem kveðið er á um í íslenskum lögum.
ÁGREININGSMÁL
Ágreiningsmál milli Tónlistarmiðstöðvar og viðskiptavinar skulu, eftir fremsta megni, leyst í sátt, en fara að öðrum kosti eftir almennum reglum íslensks réttar.
NÓTNASALA
Nótur skrifaðar fyrir 1–12 hljóðfæri eru flokkaðar sem söluverk, en efni fyrir 13 hljóðfæri eða fleiri eru leiguefni.
Prentaðar nótur keyptar eru á shop.icelandmusic.is eru sendar með pósti, nema annað sé sérstaklega tekið fram í vörulýsingu. Viðskiptavinum stendur einnig til boða að sækja keyptar prentaðar nótur á skrifstofu Tónlistarmiðstöðvar.
Nótnaefni sem keypt er sem PDF er aðgengilegt til niðurhals strax eftir kaup.
Ef þú ert með aðgang að sölusíðunni getur þú pantað nótur beint í gegnum vefverslunina. Ef þú hefur spurningar, hafðu þá vinsamlegast samband við söludeild okkar á shop@icelandmusic.is.
NÓTNALEIGA
Nótur skrifaðar fyrir 12 hljóðfæri eða fleiri eru flokkaðar sem leiguefni. Partasett stærri kammer- og hljómsveitarverka eru yfirleitt ekki til sölu, heldur aðeins til leigu fyrir fyrirhugaða flutninga. Þetta þýðir að nóturnar eru sendar til viðskiptavinar samkvæmt sérstaklega umsömdum skilmálum og með því skilyrði að þeim sé skilað eftir notkun.
Fyrirspurnir um leigur má gjarnan senda á shop@icelandmusic.is.
GREIÐSLUR
Hægt er að greiða með kreditkorti eða með erlendri millifærslu samkvæmt sérstöku samkomulagi. Einnig bjóðum við viðskiptavinum sem hafa íslenska kennitölu upp á borga með bankakröfu, en þá sendum við sérstakan reikning. Ef þú vilt nýta aðra möguleika en kortagreiðslu mátt þú vinsamlegast senda tölvupóst á shop@icelandmusic.is.
Reikningsupphæð er skuldfærð á kreditkort við útgáfu reiknings. Kortagreiðslur fara í gegnum QuickPay (www.quickpay.net), sem er PCI-vottað á hæsta stigi. Allar færslur fara fram með SSL-dulkóðun og svokallaðri PSP-tengingu.
Verð
Öll verð eru án virðisaukaskatts þar sem við erum undanþegin VSK á Íslandi.
Leiguverð miðast við hvern flutning eða upptöku
Gjaldmiðill
Verð eru í íslenskum krónum (ISK). Einnig er hægt að skoða verð í evrum (EUR), en þau eru eingöngu til viðmiðunar og ekki bindandi.
Afsláttur
Afsláttur til söluaðila
Tónlistarmiðstöð veitir almennt 34% afslátt til söluaðila. Til að fá slíkan afslátt þarf að sækja um og framvísa gögnum sem staðfesta stöðu sem söluaðili. Ef þú óskar eftir frekari upplýsingum eða vilt sækja um afslátt til söluaðila, sendu þá tölvupóst á shop@icelandmusic.is
Afsláttur af leiguefni
Áhugamanna- og skólahljómsveitir eiga rétt á 40% afslætti af leiguefni.
Einnig er hægt að veita frekari afslátt fyrir fleiri en einn flutning eða í tengslum við áheyrnarprufur o.s.frv.
Magnafsláttur
Við kaup á mörgum eintökum gildir eftirfarandi afsláttur:
- fyrstu 9 eintökin: fullt verð
- næstu 10 (10–19): 25% afsláttur
- næstu 20 (20–39): 50% afsláttur
- öll umfram það (40+): 75% afsláttur
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi magnafsláttinn mátt þú gjarnan hafa samband með tölvupósti
Skólakóraafsláttur
Kórar tengdir menntastofnunum fá 40% afslátt af prentuðum kórverkum. Þessi afsláttur leggst ofan á magnafsláttinn.
Tollar
Við sendingar innan ESB geta tollayfirvöld lagt á tolla og skatta. Tónlistarmiðstöð ber ekki ábyrgð á slíkum gjöldum. Í sumum tilvikum innheimta tollyfirvöld gjaldið af flutningsaðila, sem innheimtir það síðan hjá viðskiptavininum.
Greiðslukortagjald
Greiðslukortagjald leggst við upphæðina og fer eftir skilmálum kortafyrirtækja. Tónlistarmiðstöð leggur ekkert álag ofan á þessi gjöld.
Hvernig fara viðskiptin fram?
Til þess að kaupa nótur í vefbúðinni verður þú að búa til reikning á shop.icelandmusic.is.
Þú velur vörur, setur í körfuna og ferð þaðan í greiðsluferli. Þar sem þú sérð yfirlit pöntunarinnar og sendingarkostnað.
Ef þú ert með aðgang birtast persónuupplýsingar þínar og hægt er að breyta þeim ef þarf.
Þegar þú hefur samþykkt viðskiptaskilmála verður þér vísað áfram í greiðsluferlið þar sem þú getur lokið viðskiptunum. Pöntunarstaðfestingu er hægt að prenta af skjánum. Reikningur fylgir vörunni við afhendingu ef um prentaðar nótur er að ræða.
Kaupin eru ekki bindandi fyrr en staðfesting á kaupunum hefur borist frá Tónlistarmiðstöð.
Vörur eru afgreiddar innan 8 virkra daga frá pöntun. Tafir geta orðið vegna flókinna pantana, endurprentunar eða framleiðslutruflana, til dæmis vegna vélabilana, rafmagnstruflana eða annarra sambærilegra aðstæðna. Í þeim tilvikum mun söludeild okkar hafa samband við þig.
HÆTTA VIÐ PÖNTUN
Ef þú vilt hætta við pöntun sem þegar hefur verið lögð inn, sendu okkur vinsamlegast tölvupóst með heitinu „hætta við pöntun“, þar sem fram kemur hvenær pantað var og pöntunarnúmer. Ef þú hefur þegar fengið pöntunarstaðfestingu í tölvupósti geturðu svarað þeim pósti með „hætta við pöntun“ í efnislínu. Við staðfestum með tölvupósti innan að hámarki fimm virkra daga, nema vegna veikinda, orlofs eða fjarvista. Í slíkum tilvikum verður hún staðfest eins fljótt og auðið er.
Skilaréttur
Þú hefur 14 daga til að afturkalla pöntun. Ef þú vilt skila nótum á þeim grundvelli, skal senda þær til baka í sama ástandi og þær voru við móttöku og á þinn kostnað. Reikningur skal fylgja með. Ef þessum skilyrðum er fylgt verður sendingarkostnaður endurgreiddur innan 30 daga.
Fyrir PDF-niðurhal fellur skilarréttur niður um leið og aðgangur að niðurhali hefur verið veittur.
SÉRSTAKIR SKILMÁLAR FYRIR FYRIRTÆKI
Sömu söluskilmálar gilda og fyrir neytendur, með eftirfarandi undantekningu:
- Fyrirtæki hafa ekki rétt til að afturkalla pöntun.
GALLAR EÐA SKEMMDIR Á VÖRUM
Réttur til kröfu vegna galla
Þú hefur 24 mánuði til að benda okkur á galla á vörum. Ef þú nóturnar sem þér berast eru ekki í samræmi við pöntun eða ef varan er skemmd, skaltu leggja fram kvörtun eins fljótt og auðið er. Það er hægt að gera með því að senda tölvupóst á shop@icelandmusic.is, eða mæta á skrifstofuna okkar á opnunartíma og skila vörunni.
Ef við höfum sent ranga eða skemmda vöru munum við skipta henni út fyrir ný eintök eða, ef varan er uppseld eða ekki fáanleg af öðrum ástæðum, endurgreiða greidda upphæð ásamt hugsanlegum sendingarkostnaði vegna skilanna, þó að hámarki sem nemur stöðluðum gjöldum Íslandspósts eða sambærilegs póstflutningsaðila í þínu landi.
HÖFUNDARRÉTTUR
Kerfisbundin afritun og dreifing nótnaefnis, bæði til einkanota og í atvinnuskyni, er óheimil samkvæmt lögum og alþjóðlegum samningum um höfundarrétt.
Flest verk sem seld eru af Tónlistarmiðstöð eru útgefin af tónskáldinu; höfundarréttur og útgáfuréttur þeirra verka tilheyra tónskáldinu. Sum verk eru gefin út af Tónlistarmiðstöð; höfundarréttur þeirra verka tilheyrir tónskáldinu en útgáfuréttur Iceland Music.
Fyrirvari um rétt til opinbers flutnings
Athygli er vakin á því að greiðsla fyrir kaup eða leigu á tónlist í gegnum Tónlistarmiðstöð felur ekki í sér greiðslu til tónskálds fyrir opinberan flutning verksins. Vinsamlegast tilkynnið opinbera flutninga verksins til STEFs eða sambærilegra höfundaréttarsamtaka í öðrum löndum. info@stef.is / www.stef.is