Árstíðir - Vetrarsól

Þetta er safn nótna af fyrstu a cappella-plötu hljómsvetarinnar Árstíða sem ber nafnið Vetrarsól.

Árið 2013 hlutu Árstíðir alþjóðlega athygli þegar myndband af flutningi þeirra á laginu Heyr himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson fór eins og eldur í sinu um netið. Upptakan var gerð á lestarstöð í Þýskalandi, en hún snerti áheyrendur um allan heim.

Frá þeim tíma hafa meðlimir Árstíða safnað saman ýmsum a cappella-lögum til að þróa raddbeitingu sína og sönghæfni og hafa þau reglulega verið hluti af tónleikadagskrá sveitarinnar. Að lokum ákváðu þeir að hljóðrita nokkur af þeim verkum sem þeir höfðu haft hvað mestar mætur á að syngja í gegnum árin.

Vetrarsól (Voices of the Winter Sun) er afrakstur þeirrar vinnu — vandlega valið safn hefðbundinna íslenskra einsöngs- og kórverka sem varpar ljósi á ríkan kórtónlistararf Íslands.