Jórunn Viðar - Tónskáld mánaðarins

Jórunn Viðar (1918–2017) var eitt af fremstu íslensku tónskáldum 20. aldarinnar. Hún var ekki aðeins meðal fyrstu íslensku kvennanna til að leggja tónsmíðar fyrir sig, heldur var hún einnig brautryðjandi á ýmsum sviðum íslenskrar tónlistar. Til dæmis samdi hún tónlistina við Eld árið 1950, fyrsta íslenska ballettinn sem sýndur var opinberlega. Sama ár samdi hún einnig fyrstu frumsömdu íslensku kvikmyndatónlistina, við kvikmynd Óskars Gíslasonar, Síðasta bæinn í dalnum.

Jórunn stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi árið 1936. Hún hélt síðan til Berlínar þar sem hún stundaði nám við Hochschule für Musik, en á árunum 1943-1945 nam hún tónsmíðar við Juilliard-tónlistarháskólann í New York. Síðar stundaði hún einnig píanónám í Vínarborg.

Sönglög Jórunnar skipa sérstakan sess í íslenskri tónlistarsögu og eru mörg þeirra orðin fastur hluti af íslenskri sönghefð. Þar má nefna Únglínginn í skóginum, Við Kínafljót, Vort líf og Það á að gefa börnum brauð. Hún samdi jafnframt ýmis stærri verk, meðal annars ballettana Eld og Ólaf Liljurós og píanókonsertinn Sláttu.

Í þessu safni beinum við sjónum að sönglögum og kórverkum Jórunnar Viðar og kynnum úrval verka frá löngum höfundarferli hennar.

Hægt er að hlusta á verkin í þessu safni hér.