Hafliði Hallgrímsson - Tónskáld mánaðarins
Hafliði Hallgrímsson (f. 1941) hefur á löngum ferli sínum skapað sér stöðu sem eitt ástsælasta tónskáld þjóðarinnar. Persónulegt tónmál hans einkennist af næmu skyni fyrir línu, lit, formi og áferð.
Hafliði hóf tónlistarferil sinn sem sellisti og nam sellóleik í Reykjavík, Róm og Konunglegi tónlistarakademíuna í London, þar sem hann hlaut Madame Suggia verðlaunin árið 1966. Í kjölfarið hóf hann tónsmíðanám hjá Dr. Alan Bush og Sir Peter Maxwell Davies. Eftir útskrift ílengtist hann í Bretlandi, þar sem hann hlaut sellóleiðarastöðu hjá Skosku Kammersveitinni.
Árið 1983 sagði hann stöðu sinni hjá Skosku Kammersveitinni lausri til að snúa sér alfarið að tónsmíðum. Síðan þá hefur hann skrifað fjölda einleiks- , kammer- og hljómsveitarverka og hlotið fjölda verðlauna fyrir verk sín. Þar má helst nefna Tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1986 fyrir verkið Poemi fyrir fiðlu og strengjasveit.
Í þessu safni beinum við sjónum að kórtónlist hans og kynnum úrval kórverka úr fjölbreyttum höfundarferli hans. Mörg vinsælustu verka hans safninu eru þjóðlagaútsetningar, sem eru flestum kórum landsins vel kunnar.