Bára Grímsdóttir - Tónskáld mánaðarins

Bára Grímsdóttir (f. 1960) er eitt af fremstu tónskáldum Íslands. Hún hefur gegnt lykilhlutverki í varðveislu og miðlun íslenskrar þjóðlagaarfleifðar, samhliða því að byggja upp fjölbreyttan feril sem tónskáld.

Hún lauk prófi í tónmenntakennslu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1983 og tónsmíðanámi árið 1989. Helstu kennarar hennar voru Karólína Eiríksdóttir, Hjálmar H. Ragnarsson og Atli Heimir Sveinsson. Bára lagði stund á framhaldsnám við tónlistarháskólana í Utrecht og Haag í Hollandi undir leiðsögn m.a. Louis Andriessen, Tristan Keuris og Ron Ford.

Kórtónlist Báru hefur notið sérstakra vinsælda, meðal annars verkið Ég vil lofa eina þá, sem er eitt vinsælasta verkið í Nótnaveitunni og er reglulega flutt af kórum um allan heim. Verkalisti hennar inniheldur allt frá einleiksverkum upp í hljómsveitarverk og óperur, en meðal stærri verka hennar má m.a. nefna óperuna Jón biskup Arason frá 2021.

Bára kemur úr fjölskyldu kvæðamanna og hefur um áratuga skeið unnið að varðveislu og kynningu íslenskrar þjóðlagatónlistar. Hún hefur verið formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar og komið víða fram ásamt eiginmanni sínum, enska þjóðlagasöngvaranum Chris Foster. Saman hafa þau gefið út meðal annars plöturnar Funi (2004) og Flúr (2013).

Bára var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2019 fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi.

Hægt er að hlusta á verkin í þessu safni hér.