
Ingibjörg Azima
b. 1973
Ingibjörg Azima er tónskáld og básúnuleikari með burtfararpróf frá Tónskóla Sigursveins árið 1994.Ingibjörg lagði stund á nám í básúnuleik og útsetningum við tónlistarháskólann í Gautaborg, 1995 – 1999 og eins árs framhaldsnám, 1999-2000, við det kgl.konservatorium í Kaupmannahöfn.
Síðar lauk hún einnig námi í kórstjórn frá Uppsalaháskóla 2007 - 08. Ingibjörg hefur starfað sem básúnuleikari og kennari, kórstjóri, lúðrasveitarstjórnandi og tónskáld í Svíþjóð og á Íslandi. Tónsmíðar Ingibjargar Azimu eru fyrst og fremst innblásnar av íslenskri ljóðagerð. Ljóðrænn og þjóðlegur blær einkennir því oft tónsmíðar hennar.
Haustið 2015 kom út geisladiskurinn Vorljóð á ýli en hann inniheldur 9 sönglög Ingibjargar við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur. Ingibjörg Azima hefur einnig samið tónlist að beiðni sjálfstætt starfandi tónlistarmanna og hópa, t.d. fyrir sópransöngkonuna Margréti Hrafnsdóttur, en Margrét hefur frumflutt tónlist eftir Ingibjörgu á fjölmörgum tónleikum. Einnig samdi Ingibjörg lög við ljóð Halldórs Laxness og Snorra Hjartarsonar fyrir Stirni Ensemble og var tónlistin við ljóð Snorra Hjartarsonar flutt á Sígildum sunnudögum í Hörpu haustið 2017 og á Rás 1.
Haustið 2018 gaf Ingibjörg út sönglagabókina Varpaljóð á hörpu en hún inniheldur 10 sönglög fyrir rödd/raddir og píanó við ljóð Jakobínu Sigurðardóttur en útgáfan var í tilefni 100 ára afmæli ljóðskáldsins.
Vorið 2019 samdi Ingibjörg Azima og útsetti tvö verk fyrir stórsveit Reykjavíkur og voru þau flutt á tónleikum sveitarinnar í Hörpu í febrúar og júní sama ár. Haustið 2024 kom annar hljómdiskur með tónlist Ingibjargar út, Logn, á vegum Odradek Records.
Ingibjörg Azima is a trombone player and a composer. Ingibjörg gradueted from Academy of music in Gothenburg in 1999 and in 2000 from the Conservatiore of Copenhagen after one year of further studies. Ingibjörg Azima also studied choir conducting at the University of Uppsala in 2007-2008.
In 2015 Ingibjörg released her first album, Spring Poem in Winter, with 9 songs composed to the poems of Jakobína Sigurðardóttir (1918-1994). In 2018 Ingibjörg published a book with 10 songs to the poem of the same poet in honour of her 100 year birthday.
Ingibjörg Azima has written and arranged music for various artists and groups, among them Stirni Ensemble and Stórsveit Reykjavíkur. Her second CD, - Logn, containing 11 new songs written to the poems of four different Icelandic poets, was released in 2024 by Odradek Records.