Gunnar Gunnarsson rithöfundur

b. 1889 , d. 1975

Gunnar Gunnarsson er einn af áhrifamestu rithöfundum Íslands á 20. öld. Verk hans eru full af vísunum í heimsbókmenntirnar, fortíð og samtíð. Náttúrulýsingar Gunnars eiga sér fáa líka og íslenskir listamenn og rithöfundar leita enn í dag í smiðju hans. Höfundar eins og Jón Kalman Stefánsson hafa til dæmis sótt innblástur í Aðventu: 

...svo snjall er Gunnar í stílnum í Aðventu, afslappaður og agaður í senn, að hann kemur öllu fyrir án þess að við tökum eftir því, eiginlega bara með því að skapa stemningu sem við skynjum, sem við öndum að okkur - sem við lifum.

- Jón Kalman Stefánsson 

Gunnar var fyrsti atvinnuhöfundur Íslands sem náði að komast margsinnis á metsölulista erlendis. Þannig var hann öðrum höfundum, eins og Halldóri Laxness, fyrirmynd og sannaði að íslenskar samtímabókmenntir gætu náð út fyrir landsteinana. Þó að hann byggi í rúm 30 ár í Danmörku var hann alltaf íslenskur höfundur og sögusvið nær allra verka hans er á Íslandi.

Af vef Skriðuklausturs