Victor Urbancic

Victor Urbancic

f. 1903 , d. 1958

Austurríkismaðurinn Victor Urbancic var tónlistarmaður, hljómsveitarstjóri, tónskáld og tónlistarfræðingur. Hann dvaldi á Íslandi frá árinu 1938 til dauðadags og tók virkan þátt í uppbyggingu nútímalegs tónlistarlífs hér á landi.

Áhugi hans á íslenskri þjóðlagatónlist leiddi til þess að hann safnaði meira en fimmtíu þjóðlögum, sem hann útsetti flest fyrir kór. Eiginkona hans, austurríski málfræðingurinn Melitta Urbancic, þýddi alla texta þeirra á þýsku og ensku.