Veronique Vaka

Veronique Vaka

f. 1986

Veronique Vaka, fædd árið 1986, er kanadískt tónskáld búsett á Íslandi. Hún nam klassískan sellóleik við Vincent-d’Indy og hélt síðan áfram námi í raftónsmíðum við Université de Montréal. Hún lauk meistaragráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Páls Ragnars Pálssonar, Þuríðar Jónsdóttur og Daníels Bjarnasonar.

Veronique tók skref í átt að meira abstrakt nálgun á tónlist sinni þegar hún hóf rannsóknarverkefnið From Landscape to Music Notation. Markmið verka hennar er að skapa ljóðrænt samhengi milli þess sem hún sér, heyrir og upplifir í ósnortinni náttúru og umbreyta því í tónsmíð. Tónsmíðastíll hennar má lýsa sem lífrænum, með áherslu á smáatriði á borð við hrynjandi, áferð og hljómblæ.

Veronique Vaka hefur samið verk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Áhugamanna, Ensemble Paramirabo, Duo Harpverk, Ensemble Synaesthesis, Ensemble Adapter, Caput-hópinn, Strokkvartettinn Sigga, Ensemble Dasein, Nordic Affect og fiðlukonsert fyrir Unu Sveinbjarnardóttur.

Verk hennar hafa verið flutt á Myrkum músíkdögum (2018 og 2019) og Sumartónleikum í Skálholti (2018). Meðal komandi verkefna er útgáfa á verkinu Lendh hjá Sono Luminus í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Daníels Bjarnasonar.

Veronique er meðlimur í Tónskáldafélagi Íslands og tengt tónskáld hjá Canadian Music Centre. Verk hennar hafa hlotið stuðning meðal annars frá Listamannalaunum (2019), Tónskáldasjóði RÚV/STEFs (2018 og 2019), YRKJU (2017) og Canada Council for the Arts (2012–2013).