Úlfar Ingi Haraldsson

Úlfar Ingi Haraldsson

f. 1966

Úlfar Ingi Haraldsson hóf tónlistarnám snemma á níunda áratugnum. Fyrst lagði hann stund á kontrabassaleik og djassnám við djassdeild Tónlistarskóla FÍH. Síðar innritaðist hann í tónsmíða- og tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík og lauk þaðan B.A.-prófi árið 1990. Kennarar hans voru Karólína Eiríksdóttir, Snorri Sigfús Birgisson og Þorkell Sigurbjörnsson.

Á árunum 1992–1999 stundaði Úlfar framhaldsnám í tónsmíðum og tónfræði við tónlistardeild Háskólans í Kaliforníu í San Diego (University of California, San Diego). Helstu leiðbeinendur hans þar voru Brian Ferneyhough, Rand Steiger og Bertram Turetzky, auk þess sem hann nam hjá George Lewis, Roger Reynolds, Joji Yuasa og Harvey Sollberger.

Úlfar lauk doktorsprófi (Ph.D.) árið 2000. Doktorsritgerð hans bar heitið Developing Methodological Strategies for the Documentation and Treatment of Multi-Structural Elements in Modern Musical Composition as Relating to DUAL CLOSURE, an Original Composition for Clarinet and Chamber Ensemble. Í ritgerðinni rannsakaði hann aðferðafræðilegar nálganir við skráningu og úrvinnslu fjölþættra byggingarþátta í samtímatónsmíðum og tengsl þeirra við eigið tónverk, DUAL CLOSURE fyrir klarínett og kammersveit.

Úlfar er félagi í Tónskáldafélagi Íslands og hefur starfað sem tónskáld, kontrabassaleikari, kennari og hljómsveitarstjóri, fyrst á Íslandi og síðar í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Hann hefur samið verk fyrir sinfóníuhljómsveitir, kammerhópa og einleikara, og hafa verk hans verið flutt víða um Skandinavíu, Bandaríkin, Mexíkó og Ítalíu.

Tónverk Úlfars hafa meðal annars verið flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput-hópnum, UCSD Wind Quintet, slagverksleikaranum Steven Schick og Bertram og Nancy Turetzky-dúóinu. Sem tónskáld og flytjandi hefur Úlfar tekið þátt í fjölmörgum alþjóðlegum tónlistarhátíðum, þar á meðal norrænni tónlistarhátíð ungra tónskálda (UNM), International University Music Festival, Darmstadt Revisited Festival í San Diego, Listahátíð í Reykjavík og viðburðum tengdum Menningarborg Evrópu árið 2000.