Tryggvi M. Baldvinsson
f. 1965
Tryggvi nam tónsmíðar og tónfræði við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Atla Heimi Sveinssyni og Þorsteini Haukssyni. Hann hélt áfram námi við Tónlistarháskólann í Vín hjá Reinhold Portisch með áherslu á tónsmíðar og endurreisnarkontrapunkt. Tryggvi er nú deildarstjóri tónsmíða og tónfræði við Tónlistarskólann í Reykjavík og aðjúnkt við Listaháskóla Íslands, jafnframt því að starfa að eigin tónsmíðum.