Torfi Ólafsson

Torfi Ólafsson

f. 1955

Torfi Ólafsson fæddist í Reykjavík 8. nóvember 1955.

Hann ólst upp í Kópavogi og hóf átta ára gamall gítarnám við Tónlistarskóla Kópavogs, sem hann stundaði í fjögur ár. Trompet og horn voru þau hljóðfæri sem hann lék á í Skólahljómsveit Kópavogs frá stofnun hennar árið 1966 til 1971. Árið 1975 lauk hann prófi frá MT og árið 1980 lauk hann B.Ed.-gráðu frá Kennaraháskóli Íslands.

Torfi hefur starfað í tónlistarbransanum frá árinu 1972 og er enn mjög virkur á því sviði.

Árið 1993 stofnaði hann Gítarskóla Íslands ásamt Tryggva Hubner. Hann hefur kennt þar sem og við aðra skóla frá árinu 1981.

Torfi hefur samið yfir fimmtíu tónverk, þar af eru um fjörutíu samin við ljóð íslenskra þjóðskálda.

Mörg verka hans má heyra á plötum á borð við útgáfur Árnesingakórsins í Reykjavík, Rangæingakórsins og kór Kvennaskólans í Reykjavík, safnplötunni Fyrstu 15 árin frá Skífunni, Séð og heyrt með Pálma Gunnarssyni, Heimurinn og ég frá 1998, Lög um land frá 1990 og mörgum fleiri.

Á liðnum árum hafa tíu plötur verið gefnar út sem innihalda útsetningar Torfa og samstarf hans við ýmsa íslenska listamenn.