Þórir Baldursson
f. 1944
Þórir Baldursson lauk prófi frá kennaradeild Tónlistarskólans í Reykjavík árið 1964. Hann kenndi og starfaði sem tónlistarmaður á Íslandi þar til hann flutti erlendis árið 1970. Þórir starfaði aðallega í hljóðverum í Þýskalandi og Bandaríkjunum, bæði sem stúdíóhljóðfæraleikari og útsetjari. Meðal listamanna sem hann hefur unnið fyrir eru Elton John, Donna Summer og Grace Jones. Tónsmíðar Þóris eru að mestu sönglög, bæði í popp- og djassstíl. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir sinfóníuhljómsveitir og kvikmyndir. Þórir sneri aftur til Íslands árið 1990 og starfar nú af krafti sem kennari, flytjandi, útsetjari og tónskáld.