Þórhallur Hróðmarsson
f. 1942 , d. 2017
Þórhallur Hróðmarsson fæddist að Kiljarholti í Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu 15. september 1942. Hann er sonur Ingunnar Bjarnadóttur tónskálds og Hróðmars Sigurðssonar kennara. Þórhallur býr nú í Hveragerði. Hann er fyrrverandi kennari við Garðyrkjuskóla ríkisins.
Þórhallur samdi sitt fyrsta lag árið 1967. Lög við ljóð hans sjálfs og annarra má finna sem MIDI-skrár á síðum með ljóðunum á heimasíðu hans. Þar er einnig hægt að nálgast nótur með textum og hljómum. Nokkur ljóðanna eru á ensku.