Sveinn Lúðvík Björnsson
f. 1962
Sveinn Lúðvík Björnsson fæddist í Reykjavík árið 1962. Hann nam klassískan gítarleik, píanó og söng við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og í Tónlistarskólanum í Reykjavík og stundaði síðan nám í tvö ár við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn. Eftir heimkomuna til Íslands lagði hann stund á tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík í fjögur ár til viðbótar og sótti sumarnámskeið í tónsmíðum í Kazimierz Dolny þar sem meðal kennara var Witold Lutosławski. Frá árinu 1994, eftir að hafa kennt tónfræði og gítarleik um nokkurra ára skeið, hefur Sveinn Lúðvík helgað sig alfarið tónsmíðum.