Snorri Sigfús Birgisson

Snorri Sigfús Birgisson

f. 1954

Snorri Sigfús Birgisson hóf tónlistarnám sitt hjá Gunnari Sigurgeirssyni og hélt síðan áfram námi við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem kennarar hans voru Hermína Kristjánsson, Jón Nordal, Árni Kristjánsson í píanóleik og Þorkell Sigurbjörnsson í tónsmíðum.

Hann nam píanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum á árunum 1974–1975 og tónsmíðar hjá Finn Mortensen í Noregi, þar sem hann lagði einnig stund á raftónlist hjá Lasse Thoresen og sónólógíu hjá Thoresen og Olav Anton Thommessen á árunum 1975–1976.

Snorri flutti til Amsterdam árið 1976 þar sem hann stundaði tónsmíðanám í tvö ár hjá Ton de Leeuw. Frá árinu 1980 hefur hann búið í Reykjavík þar sem hann starfar sem tónlistarmaður og tónlistarkennari.

Snorri hefur samið einleiksverk, kammerverk, sinfónísk verk og kórtónlist. Árið 1997 frumflutti hann nýjan píanókonsert sinn með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Píanókonsertinn var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 1997.

Portrait No. 6 fyrir einleikspíanó var flutt á ISCM-hátíðinni árið 2000.