Sigvaldi S. Kaldalóns

Sigvaldi S. Kaldalóns

f. 1881 , d. 1946

Sigvaldi Kaldalóns samdi mörg af þekktustu og mest fluttu sönglögum Íslendinga, þótt hann væri að mestu sjálfmenntaður í tónlist. Höfundarverk hans er afar umfangsmikið, sérstaklega þegar haft er í huga að hann samdi eingöngu í frístundum sínum samhliða störfum sem læknir í sumum afskekktustu héruðum Íslands.

Sigvaldi var ekki framúrstefnutónskáld og á meðan samtímamenn hans á borð við Igor Stravinsky og Béla Bartók sömdu byltingarkennd tónverk, starfaði Kaldalóns innan evrópskrar tónlistarhefðar 19. aldar og hélt sig við dúr/moll-kerfið. Þrátt fyrir það hafði hann augljóslega einstakt lag á lagasmíðum og mikla næmni fyrir ljóðlist, eins og sjá má af því að flest lög hans fanga anda þeirra ljóða sem þau byggja á.

Kaldalóns samdi um 350 lög, flest fyrir einsöng og píanó. Sum þeirra hafa fléttast svo djúpt inn í þjóðarsál Íslendinga að þau eru oft talin vera þjóðlög, svo sem Á Sprengisandi og Ísland ögrum skorið.