Sigurður Sævarsson
f. 1963
Sigurður Sævarsson (f. 1963) nam söng við Tónlistarskólann í Keflavík hjá Árna Sighvatssyni áður en hann flutti sig yfir í Nýja tónlistarskólann í Reykjavík þar sem kennarar hans voru Sigurður Demetz og Alina Dubik. Árið 1994 hóf Sigurður nám í söng og tónsmíðum við Boston University í Bandaríkjunum þar sem meðal kennara hans voru William Sharp, Charles Fussell, Sam Headrick og Martin Amlin. Hann lauk meistaragráðu í báðum greinum vorið 1997.