Sigurður Árni Jónsson

Sigurður Árni Jónsson

f. 1988

Sigurður Árni Jónsson er íslenskt tónskáld og hljómsveitarstjóri búsettur í Svíþjóð.

Tónlist Sigurðar spannar allt frá einleiksverkum og kórtónlist til umfangsmeiri kammer- og hljómsveitarverka. Í nýlegum heimspekilegum og tónlistarlegum viðfangsefnum sínum fæst hann meðal annars við frásögn, lærða og meðfædda skynjun, glundroða og reglu, ómstríðu og samhljóm.

Verk hans hafa verið flutt af hópum á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Norrköping Symphony Orchestra, NorrlandsOperan Symphony Orchestra, Musica Vitae, Esbjerg Ensemble, Norrbotten NEO, Caput, Strokkvartettinum Sigga, Ensemble Dasein, Stirni ensemble og Söngsveitinni Fílharmóníu.

Tónlist hans hefur verið flutt á viðburðum á borð við Myrkum músíkdögum árin 2017 og 2020, Ung Nordisk Musik árið 2017 og New Directions Festival árið 2016, auk þess sem hún hefur verið flutt í útvarpi af RÚV og sænska ríkisútvarpinu Sveriges Radio.

Sigurður lauk BA-gráðu frá Listaháskóli Íslands þar sem hann nam tónsmíðar hjá Hildigunni Rúnarsdóttur og Tryggva M. Baldvinssyni og hljómsveitarstjórn hjá Gunnsteini Ólafsyni og Magnúsi Ragnarssyni.

Frá árinu 2015 stundaði Sigurður meistaranám í tónsmíðum við Academy of Music and Drama, University of Gothenburg undir handleiðslu prófessoranna Ming Tsao og Ole Lützow-Holm. Í kjölfarið hóf hann annað meistaranám, nú í hljómsveitarstjórn, við Piteå School of Music við Luleå University of Technology hjá prófessorunum Petter Sundkvist og Erik Westberg.

Frá árinu 2017 hefur Sigurður Árni Jónsson verið stjórnandi Ensemble Dasein, alþjóðlegs samtímatónlistarhóps með aðsetur í Gautaborg, og hefur í því starfi frumflutt fjölda verka eftir unga og framúrskarandi norræna tónhöfunda.