Pétur Guðmundsson

f. 1832 , d. 1902

Prestur. Stundaði nám við Lærða skólann 1865-68 en lauk ekki prófi. Einn fjögurra 19. aldar manna sem fengu konungsleyfi til prestsskapar án þess að hafa lokið guðfræðiprófi. Sagði sjálfur að hann hefði lært undir skóla á Bergsstöðum 1864-65. Tekinn í Reykjavíkurskóla 1865 en var tekinn þaðan á öðru ári er hann fékk Grímsey 28. apríl 1868. Fékk lausn frá prestskap 12. nóvember 1894.