Páll Ragnar Pálsson

Páll Ragnar Pálsson

f. 1977

Páll Ragnar Pálsson fæddist árið 1977 í Reykjavík. Á yngri árum sínum lék hann á gítar í rokksveitinni Maus. Þegar sveitin hætti störfum árið 2004 fann hann sína tónlistarlegu sjálfsmynd í gegnum nám í raftónlist sem leiddi hann áfram inn í klassískar tónsmíðar.

Páll lauk námi frá Listaháskóli Íslands árið 2007 og hélt áfram námi við Eistnesku tónlistar- og leikhúsakademíuna undir leiðsögn Helenu Tulve. Hann lauk doktorsprófi í tónsmíðum þaðan árið 2014.

Vorið 2013 starfaði Páll með Tallinn Chamber Orchestra við tvö tækifæri. Verkið Supremacy of Peace var pantað og frumflutt á Estonian Music Days í Tallinn (undir stjórn Risto Joost) og From Shadow to Shadow á Estonian Composers Festival í Tartu.

Verkið Nostalgia fyrir einleiksfiðlu og hljómsveit var valið tónverk ársins 2014 á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Á Myrkum músíkdögum 2014 hélt Caput-hópurinn, helsti samtímatónlistarhópur Íslands, portetttónleika með verkum Páls.

Síðar sama ár var Páll staðartónskáld á Sumartónleikum í Skálholti þar sem kammerkórinn Hljómeyki, undir stjórn Marta Halldórsdóttir, frumflutti verkið Song of Songs fyrir sópran, barítón og blandaðan kór, ásamt eldri kórverkum hans.