Páll Pampichler Pálsson
f. 1928 , d. 2023
Páll P. Pálsson fæddist í Graz í Austurríki. Hann hóf nam við Tónlistarháskólann í Graz þar sem hann lagði stund á trompetleik, fiðlu, píanó, tónsmíðar og síðar hljómsveitarstjórn. Aðeins sautján ára gamall gekk hann til liðs við trompetdeild Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Graz.
Árið 1948 bauðst honum staða aðaltrompetleikara hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og tók hann jafnframt við starfi stjórnanda Lúðrasveitar Reykjavíkur. Árið 1959 hélt hann til framhaldsnáms í hljómsveitarstjórn við Johannes Brahms Konservatorium í Hamborg. Árið 1971 var hann skipaður aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Páll P. Pálsson hefur skapað sér nafn sem framúrskarandi tónskáld. Meðal stærri verka hans eru Svaraðu mér í sumartungl fyrir kór og hljómsveit, A Few Autumn Leaves fyrir hljómsveit, Concerto di Giubileo fyrir hljómsveit og einleikskonsertar fyrir klarínett og fagott. Hann hefur einnig samið fjölmörg kammerverk, kórverk og einsöngslög.
Árið 1998 var Páll beðinn um að semja stórt sinfónískt verk fyrir heimsmeistaramótið í norrænum greinum skíðaíþrótta í Austurríki. Sinfónía hans Norðurljós (Aurora Borealis) var frumflutt á hátíðartónleikum mótsins 25. febrúar í Dachstein-Tauernhalle í Schladming.
Verkið var tileinkað þeim íþróttamönnum sem tóku þátt í keppninni. Forsvarsmenn mótsins leituðu til Páls árið áður og óskuðu eftir því að hann semdi heiðursverk fyrir mótið. Þar sem Páll hafði um árabil búið og starfað á Íslandi en var fæddur í Austurríki þótti hann tákna vel tengsl Norðurlandanna og Austurríkis, þar sem mótið fór fram.
Páll hafði stjórnað meðal annars Lúðrasveit Reykjavíkur, Karlakór Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að sinna tónsmíðum. Tónlist hans naut mikillar hylli í Austurríki; verk hans höfðu verið flutt víða og hljóðrituð til útgáfu á geisladiskum og hafði hann verið afar afkastamikill við tónsmíðar á þessum tíma.
Á hátíðartónleikunum voru auk Norðurljósa flutt Divertimento í D-dúr fyrir strengi KV 136 eftir Wolfgang Amadeus Mozart og píanókonsert í a-moll eftir Edvard Grieg. Sinfóníuhljómsveitin í Graz lék undir stjórn Arild Remmereit og einleikari í konsert Griegs var Markus Schirmer.