María Huld Markan Sigfúsdóttir

María Huld Markan Sigfúsdóttir

f. 1980

María Huld Markan Sigfúsdóttir (f. 1980) er tónskáld og fiðluleikari.

Hún lauk fiðlunámi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2000 og BA-gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands árið 2007.

María hefur verið meðlimur í hljómsveitinni amiina frá árinu 1999. Hljómsveitin hefur gefið út og hljóðritað fjölmargar plötur, flutt tónlist sína víða um heim og unnið með ýmsum listamönnum. Ásamt amiina var María tónleikameðlimur og samstarfsaðili Sigur Rósar á árunum 2000–2008.

María hefur samið tónlist fyrir hljómsveitir, fjölbreytta hljóðfærahópa, kóra, dansverk og kvikmyndir.

Verk hennar hafa verið hljóðrituð og gefin út á alþjóðavettvangi. Clockworking, Sleeping Pendulum, Aequora, Spirals og Loom hafa öll komið út hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Sono Luminus.

Árið 2012 hlaut verk hennar Sleeping Pendulum fyrir barokkfiðlu og raftónlist verðlaun á International Rostrum of Composers. Verkið Loom komst á lista The New York Times yfir 25 bestu klassísku tónverk ársins 2018. Platan Concurrence, sem inniheldur verk hennar Oceans í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands, var jafnframt á lista blaðsins yfir 25 bestu klassísku plötur ársins 2019.

Auk eigin tónsmíða hefur María hljóðritað og unnið með fjölbreyttum listamönnum og hópum, þar á meðal Los Angeles Philharmonic, Joan Jonas, Spiritualized, Nordic Affect, London Sinfonietta, Francesco Scavetta, Bryce Dessner, Mike Ott, Yann Tiersen og Ragnari Kjartanssyni. Verk hennar hafa verið flutt á Íslandi, í Bandaríkjunum, Ástralíu og víða um Evrópu.

Meðal nýrri verka hennar eru tónlist við sviðsverkið Moving off Land eftir Joan Jonas, verkin Aequora og Oceans, sem voru samin fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, Spirals og Loom fyrir Nordic Affect og Clockworking í hljómsveitarútgáfu, sem var gerð að beiðni Fort Worth Symphony Orchestra.