Magnús Ragnarsson
f. 1975
Magnús Ragnarsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík, Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Tónlistarháskólann í Gautaborg. Þá stundaði hann framhaldsnám í kórstjórn hjá Stefan Parkman við Háskólann í Uppsölum. Magnús starfar sem organisti í Langholtskirkju og stjórnar Kór Langholtskirkju, sem er 32 manna kór með menntuðum tónlistarmönnum. Hann hefur stjórnað Söngsveitinni Fílharmóníu frá janúar 2006, Hljómeyki árin 2006–2012 og Melodiu-Kammerkór Áskirkju 2007-2017. Hann kennir kórstjórn við Tónskóla Þjóðkirkjunnar og Listaháskóla Íslands og starfaði sem kórstjóri við Íslensku Óperuna 2016-2023.
Hann hefur stjórnað ballettum og kammeróperum, stjórnað Lutoslawski-