Magnús Eiríksson

Magnús Eiríksson

f. 1945

Magnús Eiríksson nam klassískan gítarleik, tónfræði og heyrnarþjálfun við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hefur samið nærri tvö hundruð lög auk tónlistar fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Magnús lék um árabil með hljómsveitinni Mannakorn, hefur gefið út nokkrar plötur með lagahöfundinum KK, var fyrsti formaður FTT og gegndi um tíma formennsku í STEF.

Magnús Eiríksson er einn vinsælasti lagahöfundur Íslands og flestir Íslendingar kunna lög hans utan að. Meðal þeirra vinsælustu eru Braggablús, Einbúinn, Einhvers staðar einhvern tímann aftur, Ég elska þig enn, Reyndu aftur, Sölvi Helgason og Óbyggðirnar kalla.