Magnús Blöndal Jóhannsson

Magnús Blöndal Jóhannsson

f. 1925 , d. 2005

Magnús Blöndal Jóhannsson gegndi lykilhlutverki í kynningu nýrra tónlistarstrauma á Íslandi um miðja 20. öld. Hann stundaði tónsmíðanám við Juilliard School í New York á árunum 1947–1952, þar sem meðal kennara hans voru Bernard Wagenaar og Marion Bauer. Á þessum tíma komst hann einnig í nokkur kynni við Edgard Varèse.

Á sjötta áratugnum heimsótti Magnús raftónlistarver í Köln, Varsjá og París þar sem hann kynntist alveg nýjum miðli tónlistar. Árið 1951 samdi hann fyrsta íslenska raðtónverkið, Fjórar abstraktsjónir (Four Abstractions) fyrir píanó. Magnús samdi einnig fyrsta íslenska rafverkið, Electronic Study for Tape, Wind Quintet and Piano, árið 1960.

Hann var ráðinn meðleikari og stjórnandi við Þjóðleikhúsið og starfaði jafnframt sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu til ársins 1976.