Lárus H. Grímsson

Lárus H. Grímsson

f. 1954

Lárus Halldór Grímsson hóf tónlistarnám sitt árið 1971 með flautuleik sem aðalgrein við blásturskennaradeild Tónlistarskólinn í Reykjavík. Á námsárum sínum lék hann á flautu og hljómborð í nokkrum metnaðarfullum hljómsveitum, en þar má helst nefna Eik (1974–1979), einni af fyrstu rytmísku hljómsveitum Íslands sem samdi allt sitt efni sjálf.

Árið 1979 hélt Lárus til Hollands í framhaldsnám við Institute of Sonology í Utrecht, þar sem aðalkennari hans var Jaap Vink. Að námi loknu starfaði hann áfram við stofnunina.

Flest tónverk Lárusar eru annaðhvort raftónverk (unnin á segulband) eða samin fyrir segulband og eitt eða fleiri hefðbundin hljóðfæri. Frá árinu 1990 hefur þó hefðbundnum hljóðfærum fjölgað í verkum hans og flest síðari verkin eru án raftónlistar. Þar má nefna Clarinet Quartet, Slúðurdálkurinn fyrir einleiksklarinettu og Tales From a Forlorn Fortress fyrir fagott, fiðlu, víólu og selló.

Meðal raftónverka hans eru Þráfylgni (Persistent Pursuit), Og þá riðu hetjur um héruð (Heroes Roamed the Country) fyrir segulband, Sambúðarsundurþykkju (Discord in Cohabitation) fyrir sembal, horn og segulband og Back to the Beginning Again? fyrir fagott og segulband.

Einnig hefur Lárus samið tónlist fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir.