Kristján Guðjónsson

Kristján Guðjónsson

f. 1979

Kristján Guðjónsson nam tónsmíðar við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan prófi árið 2004. Árið 2011 lauk hann meistaragráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands. Tónlist Kristjáns hefur meðal annars verið flutt af Duo Harpverk, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Caput-hópnum. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir leikhús, útsett og samið tónlist fyrir kvikmyndir og tölvuleiki. Samhliða tónsmíðum kennir Kristján píanóleik og tónfræði í Reykjavík.