Kolbeinn Bjarnason

f. 1958

Kolbeinn Bjarnason fæddist í Reykjavík árið 1958. Hann nam heimspeki og bókmenntir við Háskóla Íslands og flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann hélt áfram námi hjá austurríska flautuleikaranum Manuelu Wiesler og fleiri af fremstu flautuleikurum heims.

Kolbeinn hefur komið fram sem einleikari á flestum íslenskum tónlistarhátíðum og leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Osmo Vänskä. Hann hefur einnig komið fram víða í Evrópu, Bandaríkjunum, Mexíkó og Japan.

Hann hefur haldið fyrirlestra og vinnustofur við ýmsa háskóla og tónlistarstofnanir í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum, meðal annars við Juilliard School í New York, Royal Danish Academy of Music og á Takefu International Music Festival í Japan.

Kolbeinn hefur unnið með fjölmörgum íslenskum tónskáldum, svo sem Atla Heimi Sveinssyni, Hafliða Hallgrímssyni, Leifi Þórarinssyni og Þorsteini Haukssyni, sem hafa tileinkað honum verk sín. Erlendis hefur hann unnið með afar ólíkum tónskáldum, þar á meðal Toshio Hosokawa, Hiroyuki Itoh, Noriko Miura, Brian Ferneyhough, Doina Rotaru, Diana Rotaru, Hans-Henrik Nordström og Simon Mawhinney, svo nokkur séu nefnd.

Upptökur hans á öllum flautuverkum Brian Ferneyhough hafa hlotið alþjóðlegt lof.

Kolbeinn Bjarnason hóf að semja tónlist árið 2009. Hann stundaði tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands og lauk þaðan B.M.-gráðu árið 2010 og M.M.-gráðu árið 2012.