Kjartan Ólafsson

Kjartan Ólafsson

f. 1958

Kjartan Ólafsson (f. 1958) lauk Bachelor of Music-gráðu í tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984. Hann hélt áfram námi í Utrecht í Hollandi við Sonology-stofnunina þar sem hann lagði áherslu á raftónlist. Síðar stundaði hann nám við Sibeliusarakademíuna í Finnlandi þar sem kennarar hans í tónsmíðum voru Einojuhani Rautavaara og Paavo Heininen. Kjartan lauk doktorsprófi (Licentia doctorand / PhD) frá Sibeliusarakedemíunni árið 1995.