Jórunn Viðar
f. 1918 , d. 2017
Jórunn Viðar lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1936 þar sem helsti kennari hennar var píanóleikarinn Árni Kristjánsson. Næstu tvö ár stundaði hún nám í Berlín við Hochschule für Musik. Á árunum 1943–1945 hélt hún áfram námi við Juilliard School í New York þar sem hún nam tónsmíðar hjá Vittorio Giannini. Árin 1959 og 1960 bjó hún í Vínarborg þar sem hún lagði stund á píanónám.
Sönglög Jórunnar Viðar skipa sérstakan sess í íslenskri sönglagaarfleifð og mörg þeirra einkennast af inngangi í resitatífstíl. Meðal vinsælustu laga hennar eru Unglíngurinn í skóginum, Við Kínafljót, Vort líf, Þjóðvísa, Gestaboð um nótt, Kall sat undir kletti, Sönglað á göngu og jólalagið Það á að gefa börnum brauð.
Meðal stærri verka Jórunnar eru ballettarnir Eldur og Ólafur Liljurós, auk píanókonsertsins Sláttu. Hún samdi einnig fyrstu íslensku kvikmyndatónlistina við kvikmyndina Síðasti bærinn í dalnum eftir Óskar Gíslason.