Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir
f. 1990
Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir er íslenskt tónskáld. Hún nam við Listaháskóli Íslands hjá Hróðmari I. Sigurbjörnsson og Önnu Þorvaldsdóttur og lauk BA-gráðu árið 2016. Veturinn eftir fór hún í starfsnám hjá Önnu Þorvaldsdóttur í Bretlandi.
Ingibjörg Ýr hefur unnið með ýmsum sviðslistahópum, dönsurum, kammerhópum, kórum og kvikmyndagerðarfólki. Nýverið hafa verk hennar verið frumflutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands sem hluti af YRKJA-verkefninu og af Kammersveit Reykjavíkur.
Hún hefur hlotið styrki úr Tónskáldasjóði RÚV og STEFs og úr Tónlistarsjóði.
Á Íslensku tónlistarverðlaununum árið 2019 hlaut hún verðlaun sem bjartasta vonin í flokki sígildrar- og samtímatónlistar.