Hjálmar H. Ragnarsson

Hjálmar H. Ragnarsson

f. 1952 , d. 2026

Hjálmar H. Ragnarsson hefur starfað sem tónskáld á Íslandi frá því hann sneri heim árið 1980 eftir nám í Bandaríkjunum og Hollandi. Verk hans spanna vítt svið, allt frá styttri einleiksverkum til stærri sinfónískra verka, frá ljóðalögum og kórverkum til söngleikja og ópera. Þá hefur hann einnig samið tónlist fyrir dans, leikhús og kvikmyndir.

Meðal verka hans eru Spjótalög fyrir hljómsveit, In Black & White fyrir hljómsveit, Konsert fyrir orgel og hljómsveit, Over a Still Morning fyrir selló og hljómsveit, óperan Rhodymenia Palmata, Five Preludes fyrir píanó, Partíta fyrir einleiksfiðlu, Nocturne fyrir fjölrása raftónlist, sópranrödd og altflautu, Messa í fimm þáttum fyrir blandaðan kór a cappella og ballettinn Rauður þráður.

Hjálmar hefur ritað greinar og ritgerðir um ýmis fræðileg og menningarpólitísk málefni og haldið fyrirlestra um menningu, vísindi og listir. Brautryðjandi rannsóknir hans á tónlist Jón Leifs opnuðu leið fyrir alþjóðlega viðurkenningu á verkum Leifs.

Hjálmar hefur verið virkur í menningarstefnumótun og hefur verið kjörinn til forystu í ýmsum hagsmunasamtökum listamanna. Hann var skipaður fyrsti rektor Listaháskóla Íslands árið 1998 og gegndi því starfi í þrjú fimm ára kjörtímabil. Hjálmar Býr í Kópavogi og Brussel.