Hilmar Þórðarson
f. 1960
Hilmar Þórðarson fæddist á Akureyri árið 1960. Eftir að hann lauk námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1985 hélt hann til Bandaríkjanna í framhaldsnám við California Institute of the Arts og Yale University.
Á árunum 1992–1995 starfaði Hilmar sem staðartónskáld við tölvutónlistarstúdíóin CCRMA og CNMAT við Stanford University og University of California, Berkeley.
Tónverk hans hafa verið flutt víða um heim og gefin út á fjölmörgum geisladiskum.