Hildigunnur Rúnarsdóttir

Hildigunnur Rúnarsdóttir

f. 1964

Hildigunnur Rúnarsdóttir lauk BA-prófi í tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1989. Hún hélt áfram námi í Hamborg hjá Günther Friedrichs og í Kaupmannahöfn hjá Svend Hvidtfelt Nielsen.

Hildigunnur hefur sungið með fjölmörgum kórum, þar á meðal kammerkórnum Hljómeyki og Koncertforeningens Kor í Kaupmannahöfn. Hún starfar nú sem tónlistarkennari og tónskáld í Reykjavík.