Herbert Hriberschek Ágústsson

Herbert Hriberschek Ágústsson

f. 1926 , d. 2017

Herbert Hriberschek Ágústsson fæddist árið 1926. Hann stundaði nám í Graz í Austurríki þar sem kennarar hans í tónsmíðum voru Arthur Michl og Franz Mixa. Herbert var hornleikari í Fílharmóníuhljómsveitinni í Graz á árunum 1945–1952, en fluttist síðan til Íslands og varð aðalhornleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

Samhliða því starfaði hann sem tónskáld, kórstjóri og kennari. Hann var skólastjóri Tónlistarskólans í Keflavík frá 1976 til 1985.

Blásturshljóðfæri gegna mikilvægu hlutverki í verkum Herberts. Fyrir eigið hljóðfæri samdi hann meðal annars Concerto fyrir horn og hljómsveit (1963), Andante fyrir horn og strengjasveit (1950) og Rondo fyrir horn og strengjasveit (1973). Meðal annarra verka fyrir blásturshljóðfæri eru Sinfonietta fyrir blásara, píanó og slagverk (1973) og Quintet fyrir blásarakvintett (1968).

Herbert takmarkaði sig þó alls ekki við tónsmíðar fyrir blásturshljóðfæri; meðal stærri verka hans er Formgerð II (Structure II) frá árinu 1979.