Haukur Þór Harðarson

Haukur Þór Harðarson

f. 1989

Haukur Þór Harðarson rannsakar í verkum sínum hið efnislega eðli þess rýmis þar sem hlustunin á sér stað. Með fíngerðri og formrænni umbreytingu hljóða og enduróma kannar hann möguleikann á að færa hlustandann nær hljóðrýminu og þeim tíma sem hann er staddur í.

Tónlist hans, sem spannar bæði hljóðfæra- og raftónverk, hefur verið lýst sem brothættri, fíngerðri, ákafri, einbeitttri og líkamlegri.

Haukur nam tónsmíðar hjá Atli Ingólfsson við Listaháskóli Íslands og síðar hjá Richard Ayres og Wim Henderickx við Conservatorium van Amsterdam. Að því loknu stundaði hann nám við Institute for Sonology við Royal Conservatory of The Hague og tók síðar einkatíma hjá Rebecca Saunders í Berlín.

Samhliða námi sínu tók hann þátt í námskeiðum og hátíðum á borð við Voix Nouvelles (Royaumont-klaustrið, 2014), Musiikin Aika (Vitasaari, 2015), Mixtur (Barcelona, 2016) og International Young Composers Academy (Tchaikovsky City, 2016). Hann hefur einnig notið leiðsagnar tónskálda eins og Brian Ferneyhough, Carola Bauckholt, Chaya Czernowin, Dmitri Kourliandski, Fabien Lévy, Johannes Schöllhorn, Mark André, Peter Ablinger og Oscar Bianchi.

Verk Hauks hafa verið flutt af hópum og tónlistarfólki á borð við Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ensemble Mosaik, Trio Abstrakt, Elektra Ensemble, Ensemble Adapter, Departure Duo, Caput, Ensemble Recherche, Neue Vocalsolisten, Asko|Schönberg, Nieuw Ensemble, TAK, Quatuor Diotima, Siggi String Quartet, Moscow Contemporary Music Ensemble, Marco Fusi, Jack Adler McKean, Sophie Fetokaki, Unu Sveinbjarnardóttur, Sarah Saviet og Loadbang.

Tónlist Hauks hefur verið flutt á hátíðum og tónleikaröðum á borð við Acht Brücken (Þýskalandi), Myrkum músíkdögum, Listahátíð í Reykjavík, Iceland in New York (Bandaríkjunum), An Evening of Today (Hollandi), Cluster (Þýskalandi), 15:15, Sonic Festival (Danmörku) og Ung Nordisk Musik á Íslandi, í Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi, en þar var hann jafnframt einn skipuleggjenda árið 2017.

Haukur er listrænn meðstjórnandi tónleikaraðarinnar Active Listening og jafnframt meðlimur og meðstofnandi tónskáldahópsins Errata.

Hann býr nú í Berlín og starfar þar sem sjálfstætt starfandi tónskáld.