Hallvarður Ásgeirsson

Hallvarður Ásgeirsson

f. 1976

Hallvarður Ásgeirsson fæddist í Reykjavík árið 1976. Hann nam gítarleik á djass- og rokksviði Tónskóli FÍH og lauk þar 6. stigi.

Hann stundaði tónsmíðanám við Listaháskóli Íslands og útskrifaðist árið 2006, auk þess að leggja stund á framhaldsnám í tónlistarkennslu árið 2007. Meðal kennara hans við skólann voru Hilmar Þórðarson, Ríkharður Friðriksson og Úlfar Haraldsson. Hallvarður hélt áfram námi við Brooklyn College hjá Douglas Cohen, Tania León og Jason Eckardt. Hann lauk þaðan meistaragráðu (M.Mus.) árið 2009. Hallvarður hefur kennt tónlist við Tónlistarskóli Reykjanesbæjar og kennir nú við Tónlistarskóli Hafnarfjarðar og Tóney.

Hallvarður hefur unnið með fjölmörgum listamönnum við flutning og upptökur á tónlist af margvíslegum toga. Hann var meðlimur hljómsveitarinnar Stórsveit Nix Noltes og fór með henni í tónleikaferðir um Evrópu og Bandaríkin. Árið 2006 gaf Hallvarður út eigin tónverk undir heitinu Lífsblómið hjá Paradigms Records og verk hans Cityscape var gefið út af International Electro Acoustic Festival við Brooklyn College.