Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson

Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson

f. 1940

Ég fæddist á Hauganesi í Eyjafirði og ólst upp við tónlist og hafði sjálfur mikla ánægju af söng. Ég var sjómaður um langt skeið, lærði til iðnaðar og varð vélvirkjameistari. Síðar stundaði ég nám við Iðnskólinn í Reykjavík og lauk þaðan meistaraprófi í vélvirkjun.

Ég byrjaði snemma að yrkja ljóð og reyndi jafnframt að semja lög við þau. Ég hef gefið út sjö ljóðabækur.

Ég hef sótt fjölmörg tónlistarnámskeið og samið marga söngtexta auk þess að semja lög við fjölda þeirra. Ég hef gefið út tvo geisladiska með alls 23 ljóðum og lögum eftir mig: Ljúfar stundir og Lífið er dans.

Nokkrir af þekktustu söngvurum landsins hafa sungið lögin mín. Ég hef einnig gefið út tvær bækur með einsöngslögum: 1. bindi (útsett af Jóni Kristni Cortez) og 2. bindi (útsett af Þórði Magnússyni).

Helstu útsetjarar sem ég hef unnið með eru Össur Geirsson, Páll B. Szabó, Vilhjálmur Guðjóns og fleiri.

Nú liggja eftir mig 85 ljóð í nótum og ég hef einnig samið fjölda laga við ljóð annarra.