Hafdís Bjarnadóttir
f. 1977
Hafdís Bjarnadóttir fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1977. Hún hóf að spila á rafgítar 12 ára gömul með áherslu á rokk- og þjóðlagatónlist, lék með hljómsveitum og samdi eigin tónlist. Hún lauk prófi í djassgítarleik frá FÍH árið 2002. Hafdís lauk BA-prófi í tónsmíðum frá Listaháskóli Íslands árið 2007 og í kjölfarið meistaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 2009.
Hafdís hefur helgað tónlistarstarf sitt því að brjóta niður mörk milli ólíkra tónlistarstefna. Meðal fyrri verkefna hennar eru hljóðinnsetning fyrir Nordic Lighthouse á heimssýningunni í Sjanghæ árið 2010, hljómsveitarverk byggt á prjónauppskriftum, tvær sólóplötur með blöndu ólíkra stíla og hljóðfæra, kammerverk samið út frá gröfum og tölfræðigögnum íslensku bankanna í bankahruninu 2008, ýmis pöntuð verk fyrir einleikshljóðfæri og kammerhópa hérlendis og erlendis, verk fyrir blandaðan kór og rafgítar, og margt fleira.
Önnur sólóplata Hafdísar, JÆJA, hlaut lof gagnrýnenda og var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Verk hennar fyrir harmonikku og Halldórófón, A Day in February, var tilnefnt af Ríkisútvarpinu sem framlag íslands á International Rostrum of Composers í Vín árið 2011.
Hafdís býr og starfar, bæði sem gítarleikari og tónskáld í Reykjavík.