Gunnar Karel Másson

Gunnar Karel Másson

f. 1984

Gunnar Karel Másson fæddist í Reykjavík árið 1984. Hann hóf tónlistarnám á unga aldri og hefur leikið á fjölbreytt úrval hljóðfæra.

Sem tónskáld leggur Gunnar einkum áherslu á kammermúsík þar sem honum finnst tónlist sín njóta sín best í smærri hljóðfærasamsetningum.

Samhliða tónsmíðum hefur hann einnig markað sér sess sem tónleikaframleiðandi. Árið 2012 stofnaði hann Sonic Festival í Kaupmannahöfn ásamt Filip C. de Melo. Hann er jafnframt einn sýningarstjóra tónleikaraðarinnar Jaðarber í Reykjavík.

Gunnar er meðlimur í Dansk Komponistforening, leikhópnum 16 elskendur og S.L.Á.T.U.R..