Gunnar Andreas Kristinsson
f. 1976
Gunnar Andreas Kristinsson (f. 1976) lærði tónsmíðar hjá Kjartani Ólafssyni og Atla Heimi Sveinssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík, hjá Krzysztof Meyer við tónlistarháskólann í Köln og loks hjá Martijn Padding, Diderik Wagenaar og Clarence Barlow við Konunglega tónlistarháskólann í Haag, þar sem hann lauk meistaragráðu í tónsmíðum árið 2004.
Að undanskildum nokkrum söng- og raftónverkum eru tónsmíðar Gunnars að mestu hljóðfæraverk, allt frá einleiksverkum til stórra hljómsveitarverka. Mörg þeirra hafa ratað á tónlistarhátíðir víða um heim, svo sem Listahátíð í Reykjavík, Ung Nordisk Musik, Gaudeamus Festival, Nederlandse Muziekdagen, Ultima Festival, Myrka músíkdaga, Suså Festival, Nordic Music Days og Darmstadt-sumarnámskeiðin.
Meðal þeirra hljómsveita og hópa sem hafa flutt verk Gunnars eru Nieuw Ensemble, De Ereprijs, Orkest De Volharding, Caput-hópurinn, Kammersveit Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Ensemble Multifoon, Soil Ensemble, Ensemble Modelo62, Dygong Ensemble, Stockholm Saxophone Quartet, Skark Ensemble, Duo Harpverk, Blásarasveit Reykjavíkur, Nordic Affect, Íslenski flautukórinn og Orkiestra Muzyki Nowej.
Fyrsti geisladiskurinn sem helgaður er eingöngu tónlist Gunnars, Patterns, hlaut Kraumsverðlaunin árið 2013. Gunnar var tilnefndur sem tónskáld ársins og hljómsveitarverk hans Angelic Mechanisms var tilnefnt sem tónverk ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2013. Klarínettukonsert hans, Sisyfos, var framlag Ríkisútvarpsins til International Rostrum of Composers í Helsinki í maí 2014 og verk hans Arma Virumque Cano var valið til flutnings á ISCM World Music Days í Wrocław í október sama ár.