Guðlaugur Kristinn Óttarsson

Guðlaugur Kristinn Óttarsson

f. 1954

Guðlaugur Kristinn Óttarsson fæddist í Reykjavík 1954 og skírður í höfuð á föðurafa sínum Guðlaugi A. Magnússyni gullsmiði og tónlistarmanni sem var í framlínu íslenskrar tónlistar í klassík jafnt sem jazzi, sem og öflugur í félagsstarfi tónlistarmanna, en hann lést 1952. Amma hans í móðurætt var Vivan Aurora Signora Holm, og fyrsti sjúkraþjálfari landsins, sem og bæði píanó- og gítarleikari sem átti stóran þátt í tónlistaruppeldi hans.

Guðlaugur ólst upp á Laugavegi 22, hvar innangengt var í Gull- og Silfursmiðju afa hans, en þar komst hann í kynni við listiðnað og efnisfræði málma og smíðaði sinn fyrsta silfurgrip 1957. Guðlaugur fetaði í fótspor afa sína og fór til Danmerkur að læra silfursmíði 15 ára gamall. Fyrir þann tíma var hann í sveit hjá Sigfúsi Vigfússyni á Geirlandi sem var vélsmiður og rafvirkjameistari sem smíðaði og setti upp vatnsaflsvirkjanir fyrir bændur í sveitinni og var Guðlaugur nemandi hans frá 10 ára aldri.

Fyrstu opinberu tónlistargjörningar hans voru í Ríkisútvarpinu þegar hann var sex ára, hvar hann söng oft einsöng í barnatímum, en engar upptökur hafa varðveist. Hann var heppinn með tónlistarkennara í Melaskóla, sem var Magnús Pétursson, sem og naut hann kennslu hans í Hagaskóla og samdi sína fyrstu preludíu 1969 sem var frumflutt í ríkissjónvarpinu 1971.

Í Menntaskólanum að Laugarvatni naut hann tónlistarkennslu hjá Guðmundi Emilssyni og spilaði einnig tónlist eftir Leif Þórarinsson, hvers tónlist hann drakk í sig, en Guðlaugur var í skólahljómsveitum skólans öll sín námsár þar, en síðustu tvö námsárin starfaði þessi skólahjómsveit einnig tvö sumur á Austfjörðum 1974 og 1975.

Guðlaugur hóf nám í Háskóla Íslands í stærðfræði, eðlisfræði og tölvunarfræði 1975, hvar kennari hans í því síðarnefnda var Dr. Oddur Benediktsson og í lokaverkefninu skrifaði hann forrit sem tók inn laglínur og útsetti fyrir fimm raddir á IBM 1420 tölvu háskólans, og má því segja að hafi verið fyrsti vísirinn að gervigreind, en forritið studdist við 300 hljóma sem vistaðir voru á gataspjöldum sem nemendur við Verslunarskóla Íslands slógu inn, og er staðfest að hljómsveitin ABBA hafi fengið veður af þessari vinnu, en samhliða háskólanámi sínu starfaði hann með hljómsveitunum Galdrakarlar og Sextettinum.

Í upphafi árs 1981 varð Guðlaugur stofnmeðlimur í endursköpun hljómsveitarinnar Þeyr, sem þá hafði verið sex manna popphljómsveit, en nú kvað við nýjan tón hvar fyrsta plata þeirra var Útfrymi, en sama ár komu út plöturnar "Iður til Fóta" og "Mjötviður Mær" - en eins og móðir Guðlaugs kenndi honum er best að hætta leik þá hæst hann stendur, svo sumarið 1983 varð til hljómsveitin KUKL sem var fyrsta íslenska hljómsveitin til að spila á Hróarskeldu og gaf út 4 vinylplötur sem hafa skilað sér á CD.

Samstarf Guðlaugs með Megasi hófst árið 1985 í hljómsveitinni MEGAKUKL sem hélt tónleika í Gamlabíói 6. og 7. september það sama ár og gaf Guðlaugur nýlega út eitt af verkum tónleikanna „Dr. Sölvi“ sem finna má á netinu – en samhliða KUKL störfuðu Guðlaugur og Björk sem dúett og hljóðrituði 11 tónverk sem gengu undir heitinu "The Elgar Sisters Sessions" sem síðar varð stökkpallur fyrir sólóferil þeirra beggja.

Guðlaugur átti síðan eftir að starfa með Megasi í 25 ár – hvar helst má nefna Loftmynd 1987 og svo Höfuðlausn 1988 með Hilmari Erni Hilmarssyni, og svo Hættuleg Hljómsveit og Glæpakvendið Stella 1990, hvar hann kynntist trommaranum Birgi Baldurssyni sem ásamt bassaleikaranum Haraldi Þorsteinssyni áttu eftir að starfa með Guðlaugi í sólóverkefnum hans. Á þessum árum starfaði Guðlaugur einnig með ýmsum erlendum hljómsveitum svo sem Killing Joke, Psychic TV, Current 93, sem og með innlendum hljómsveitum svo sem Súkkat og Megasukk, en þegar leið að aldarlokum hóf Guðlaugur formlega sólóferil sinn 1998 sem einleikari í klassískri tónlist, hvar viðfangsefnið var Bach – en einnig frumsamið efni sem heyra má á fyrstu sólóplötu hans Dense Time 2005, hvar um 50 tónlistamenn tóku þátt, en efni plötunnar mynda heildræna mynd af þeirri tónlist sem Guðlaugur hafði verið að semja og vinna við á árunum 1986 til 2005.

Dense Time fékk alsstaðar góða dóma, en fósturfaðir Guðlaugs, Guðmundur Jónsson óperusöngvari söng sinn svanasöng á plötunni í tónverkinu Sirius, en Guðmundur lést tveimur árum síðar 2007.

Fyrir utan tónlist hefur Guðlaugur einnig starfað sem vísindamaður í stærðfræðilegri eðlisfræði hjá ýmsum nýsköpunarfyrirtækjum, sem og haldið fyrirlestra og birt greinar á alþjóðlegum vettvangi, sem og að sinna kennslu í stærðfræði, eðlisfræði og rafeindatækni á framhalds- og háskólastigi, en 1994 skapaði hann kerfi sem varpaði bókstöfum yfir í tóna hvar B og H voru ekki sömu nóturnar að hætti J.S.Bach sem gat spilað nafnið sitt sem B-A-H-C, en í dag eru nóturnar B og H álitnar þær sömu, en 2008 notaði hann þetta kerfi sitt til að útsetja skákir yfir í tónlist fyrir kvikmyndina Me and Bobby Fisher – og hélt svo tónleika í Laugardælakirkju þar sem Fischer er jarðsettur, en þessi kvikmyndatónlist kom út í takmörguðu upplagi 2009 undir heitinu „Post humous art value formula“ í 100 eintökum.

Síðan 1987 hefur Guðlaugur gengið undir nafninu „Þriðja eyrað“ sem Megas veitti honum, en það er staðsett í hnakkanum og er sérstaklega næmt á þagnir – því án þagna er jú engin tónlist. Það er því vel við hæfi að 2018 uppgötvaði Guðlaugur það sem hann nefnir „Hulduljós“ sem allar lifandi skepnur gefa frá sér, en hverfur við andlát viðkomandi skepnu.

Sama ár uppgötvar hann að Hulduljós frá skepnum er af sama styrk og Hulduljós sem fjöllin gefa frá sér, ef þau ná massa upp á milljarð tonna, en hann og samstarfsmenn hafa kortlagt Hulduljós beggja vegna Atlantshafsins allt suður að miðbaugi, hvar bæði skepnur og fjöll eru viðfangsefnið.

Síðastliðin átta ár hefur hann helgað tíma sínum í annarsvegar rannsóknir á Hulduljósi, sem og að koma tónverkum sínum út í nótnaskrift, hvar fyrsta slíkt verk er „Sjöunda Innsiglið“ sem hann lagði drög að 1983 eftir að hljómsveitin Þeyr leið undir lok.