Gísli Jóhann Grétarsson

Gísli Jóhann Grétarsson

f. 1983

Gísli Jóhann Grétarsson er tónskáld og hljómsveitarstjóri búsettur í Ósló í Noregi og starfar á sviði samtímatónlistar, bæði við flutning og tónsmíðar. Með náttúruna sem innblástur og ævintýralegan frásagnarstíl að leiðarljósi málar hann myndir með tónlist sinni. Síðustu sex ár hefur hann starfað með fjölmörgum kórum sem stjórnandi og tónlistarstjóri bæði í Noregi og á Íslandi og sérhæft sig í flutningi nýrrar tónlistar.

Gísli Jóhann Grétarsson (f. 1983 á Akureyri) hóf nám í klassískum gítarleik sjö ára gamall við Tónlistarskólinn á Akureyri. Árið 2006 lauk hann BS-gráðu í eðlisfræði og árið 2007 flutti hann til Svíþjóðar til að leggja stund á tónsmíðar við Luleå University of Technology hjá prófessor Jan Sandström. Hann lauk BA-prófi árið 2010 og hóf síðar sama ár meistaranám í tónsmíðum við sama skóla, sem hann lauk vorið 2012.

Gísli hefur stundað nám í gítarútsetningum og tónsmíðum hjá prófessor Jan-Olof Eriksson, orgeltónsmíðum hjá prófessor Hans-Ola Ericsson, kórstjórn hjá prófessor Erik Westberg og hljómsveitarstjórn hjá prófessor Petter Sundkvist. Sem lokaverkefni bæði í BA- og MA-námi samdi hann stuttar óperur sem hann stjórnaði sjálfur og framleiddi.

Verk Gísla spanna allt frá sönglagaflokkum, einleikskonsertum fyrir ýmis hljóðfæri, kórtónlist, hljómsveitarverkum og kirkjutónlist til kammermúsíkur í margvíslegum myndum. Verk hans hafa verið flutt víða á Norðurlöndum, í Finnlandi, Ítalíu, Austurríki, Spáni, Frakklandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum og á Íslandi.