Friðrik Örn Sigþórsson

Friðrik Örn Sigþórsson

f. 1996

Tónskáldið og bassaleikarinn Friðrik Örn Sigþórsson er fæddur í Reykjavík árið 1996 en ólst að miklu leyti upp í Stykkishólmi. Hann hóf nám við tónlistarskóla FÍH árið 2017 en færði sig fljótlega yfir í MÍT, þar lagði hann stund á bassanám og aukanám í rytmískum söng. 

Friðrik hefur frá unglingsárum verið iðinn við að semja lög og texta fyrir ýmis verkefni, en í MÍT fékk hann tækifæri til að prófa sig áfram í útsetningum og þróa tónsmíðar sínar frekar. Hann fann að þetta væri spennandi vettvangur fyrir sig og leiddi það til þess að eftir útskrift árið 2023 skráði hann sig í tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands og kemur til með að útskrifast þaðan vorið 2026. Helstu tónsmíðakennarar hans eru Páll Ragnar Pálsson og Bergrún Snæbjörnsdóttir. Í náminu hefur Friðrik fært sig ört í tilraunakenndari tónlist og náð að þróa sinn stíl sem einkennist helst af forvitni hans um hljóðmöguleika hefðbundinna hljóðfæra.

Friðrik er með víðtæka reynslu úr íslenska tónlistargeiranum sem bassaleikari. Hann er virkur meðlimur í ýmsum verkefnum þvert á tónlistarstíla, til dæmis rokkhljómsveitinni Hyl, hljómsveit Kára Egils, progg-rokksveitinni Project Reykjavík og djasstríói Matthíasar Helga Sigurðarsonar. Ásamt þessu hefur hann komið fram með ýmsu tónlistarfólki hvaðanæva að úr íslensku tónlistarlífi, t.d. Jónfrí, Frumburði, Rebekku Blöndal og Ara Árelíus.