Fjölnir Stefánsson

Fjölnir Stefánsson

f. 1930 , d. 2011

Fjölnir Stefánsson hóf tónlistarnám sitt árið 1943 í sellóleik hjá Heinz Edelstein við Tónlistarskólann í Reykjavík. Síðar lagði hann stund á tónfræði og tónsmíðar hjá Jóni Þórarinssyni og lauk prófi árið 1954.

Fjölnir hélt áfram námi í London hjá Mátyás Seiber á árunum 1954–1958. Að námi loknu sneri hann aftur til Íslands. Hann kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík frá 1958 til 1968 þegar hann tók við stöðu skólastjóra Tónlistarskóla Kópavogs, sem hann gegndi til 1. september 2000 þegar hann lét af störfum.

Fjölnir var einn af stofnendum Musica Nova árið 1959 og sat í stjórn Íslenskrar tónverkamiðstöðvar frá stofnun hennar árin 1968 til 1984, þar af sem stjórnarformaður á árunum 1983–1984.

Hann sat einnig í stjórn STEF frá 1974 til 1988.

Árið 1994 var Fjölnir útnefndur heiðurslistamaður Kópavogs.