Finnur Torfi Stefánsson
f. 1947
Finnur Torfi Stefánsson lauk Cand.jur gráðu frá Háskóla Íslands árið 1972 og prófi í stjórnmálafræði frá University of Manchester árið 1974. Hann starfaði sem lögfræðingur og tók virkan þátt í stjórnmálum á Íslandi, bæði sem borgarfulltrúi og alþingismaður.
Árið 1985 lauk Finnur Torfi BA-prófi í tónfræði og tónsmíðum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og hélt áfram námi við University of California, Los Angeles. Að loknu meistaraprófi hélt hann áfram tónsmíðanámi hjá Brian Ferneyhough og Roger Reynolds við University of California, San Diego.
Meðal tónverka Finns Torfa er sjö stór hljómsveitarverk, óperan The Shinbone and the Shell og þrír konsertar fyrir hljómsveit og einleikshljóðfæri. Hann hefur samið fjölbreytt kammerverk, þar á meðal strengjakvartetta, blásarakvintetta, verk fyrir einleikspíanó, kórtónlist og einsöngslög. Sinfóníska ljóðið De Amore komst á stuttlista í Masterprize-keppninni árið 2001.
Hljóðritaskrá:
- Waves in the Field (FCD002)
- Movements ’98 fyrir fiðlu og píanó
- Suite from the Opera “The Shinbone and the Leg”
- Movements ’98 fyrir strengjakvartett
- Piece IV fyrir hljómsveit