Fenrir Ván Óskarsbur

Fenrir Ván Óskarsbur

f. 1994

Fenrir Ván (áður Þórir Hermann, f. 1994) er klassískur píanóleikari og stundaði tónsmíða- og píanónám við Listaháskóla Íslands. Fenrir lærði píanó-, gítar- og klarínettuleik frá unga aldri í Englandi, en seinna fluttist hán til Íslands og útskrifaðist með burtfararpróf í klassískum píanóleik og tónsmíðum frá FÍH og Tónlistarskólanum í Reykjavík. Þrátt fyrir klassíska menntun Fenris sækir hán innblástur úr öllum mögulegum stefnum og stílum. Fenrir hefur komið fram á fjölmörgum tónleikum ásamt því að semja og flytja eigin verk fyrir lúðrasveitir, kóra, strengi og píanó auk fjölda útsetninga. Meðfram tónlistinni unir Fenrir sér vel við garðyrkju, skúlptúr, teikningu, ritlist og bókagerð og beitir sér fyrir verndun dýra og bættu loftslagi.